Valur deildarmeistari

Hrafnhildur Skúladóttir og stöllur hennar í Val eru deildarmeistarar. stækka

Hrafnhildur Skúladóttir og stöllur hennar í Val eru deildarmeistarar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Valur tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í N1-deild kvenna í handknattleik þegar liðið vann stórsigur á HK, 38:19, en liðin áttust við í Digranesi.

Elín Anna Baldursdóttir skoraði 5 mörk fyrir HK en hjá Val var Hildigunnur Einarsdóttir markahæst með 9 mörk og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði 8.

Haukar gerðu góða ferð til Akureyrar en Hafnarfjarðarliðið vann fjögurra marka sigur, 35:31. Martha Hermannsdóttir skoraði 10 mörk fyrir Akureyrarliðið en hjá Haukum var Hanna G. Stefánsdóttir að venju markahæst en hún skoraði 11 mörk.

Fylkir hafði betur gegn FH í Kaplakrika, 34:24, og náði þar með fimmta sætinu. Sunna Jónsdóttir var markahæst í liði Fylkis með 8 mörk en hjá FH var Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir atkvæðamest með 8 mörk en athygli vakti að hún hlaut ekki náð fyrir augum Júlíusar Jónassonar landsliðsþjálfara en Ragnhildur hefur leikið vel með FH liðinu í vetur.

Í Safamýrinni hafði Fram betur gegn Stjörnunni, 27:23. Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Fram og Hildur Þorgeirsdóttir 6. Hjá Stjörnunni voru þær Jóna Sigríður Halldórsdóttir og Harpa Sif Eyjólfsdóttir atkvæðamestar með 5 mörk hvor.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is