Andri: Jafnvel of værukærir

Akureyringar urðu að sætta sig við tap á Seltjarnarnesi í dag. stækka

Akureyringar urðu að sætta sig við tap á Seltjarnarnesi í dag. mbl.is/Steinn Vignir

„Fyrst og fremst fór hræðilegur fyrri hálfleikur með þetta hjá okkur,“ sagði Andri Snær Stefánsson sem gerði 8 mörk fyrir Akureyri í 29:26 tapi fyrir Gróttu í dag í N1-deildinni í handknattleik.

Sex af þessum mörkum komu úr vítum, þar sem Andri Snær sýndi mikið öryggi en honum var þó klaufaskapur norðanmanna hugleikinn.

„Ég veit ekki hvað veldur, við áttum frábæran leik gegn FH í síðasta leik og höfum jafnvel verið of værukærir, haldið að við þyrftum ekkert að hafa fyrir sigri en Gróttumenn mættu eins og grenjandi ljón svo við vorum heppnir að vera ekki meira undir eftir fyrri hálfleik. Við þurftum svo að hleypa leiknum aðeins upp eftir hlé til að komast inní hann og það tókst næstum en vorum bara klaufar, sjálfum okkur verstir og Grótta var miklu betra liðið í dag,“ sagði Andri Snær.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is