Hjalti: Dramað þjappað okkur saman

Hjalti í baráttu við Heimi Örn Árnason í dag. stækka

Hjalti í baráttu við Heimi Örn Árnason í dag. mbl.is/Steinn Vignir

Hjalti Þór Pálmason fór á kostum gegn Akureyri í dag þegar hann skoraði 11 mörk í 29:26 sigri Gróttu í N1-deildinni í handknattleik en var mun ánægðari með sigurinn.

„Eins og menn vita höfum við oft verið lygilega nálægt því að vinna fleiri leiki í vetur og leiðinlega oft tapað með einu marki.  Okkur hefur sjálfum fundist stígandi í liðinu en  oft fundist vanta einhvern smá neista til að gera út um leiki,“ sagði Hjalti eftir leikinn.

„Við vorum grátlega nálægt því gegn Haukum um daginn og ætli það hafi ekki verið kornið sem fyllti mælinn. Svo er dramað í kringum Halldór Ingólfsson og að Geir Sveinsson kom til að taka við en það hefur líklega bara þjappað liðinu betur saman, líklega verið sparkið sem þurftum að fá í rassinn. Geir hefur verið með okkur í viku og ekki farið útí miklar taktískar breytingar en hann er gríðarlega reyndur, menn hlusta á hann og hann hefur náð meiri yfirvegun í leik okkar. Það hefur kannski verið það sem þurfti,“ sagði Hjalti eftir leikinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is