„Kallaður til og var klár í það“

Halldór Ingólfsson í leik með Gróttumönnum gegn Val. stækka

Halldór Ingólfsson í leik með Gróttumönnum gegn Val. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Vandamálið snerist bara um að samningur minn við Hauka var kunngerður svo snemma, en málið er núna búið,“ sagði Halldór Ingólfsson fyrrverandi þjálfari Gróttu í N1-deild karla en hann hefur ákveðið að leika áfram með liðinu þrátt fyrir brottreksturinn á dögunum sem kom í kjölfar þess að hann samdi við Hauka um þjálfun liðsins á næstu leiktíð.

„Aðalatriðið er auðvitað að við höldum okkur uppi og Grótta þurfti allan þann stuðning sem hægt er að fá, ég var kallaður til og var alveg klár í það,“ sagði Halldór sem lagði sitt af mörkum þegar liðið vann Akureyri 29:26 á Seltjarnarnesi í gær.

„Við vitum að getan er til staðar í liðinu og það þurfti bara þennan neista sem verið hefur í liðinu. Við vorum komnir alveg upp við vegg en menn eru staðráðnir í að halda sér uppi. Þetta er það sem koma skal í síðustu fjórum leikjunum og ég hef alla tíð haft fulla trú á liðinu. Hún hverfur ekki,“ sagði Halldór.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is