Þrír hörkuleikir í N1-deild karla í handbolta í kvöld
Haukamaðurinn Freyr Brynjarsson og Framarinn Halldór Sigfússon í baráttu en lið þeirra mætast í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
17. umferð N1-deildar karla í handknattleik lýkur í kvöld með þremur leikjum en umferðin hófst í gær þegar Gróttumenn unnu góðan sigur á Akureyringum á Seltjarnarnesi.
Haukar geta stigið stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum takist þeim að leggja Framara að velli í Safamýrinni. Haukar hafa fjögurra stiga forskot á Akureyri og eiga leikinn til góða í kvöld. Framarar hafa hins vegar verið á miklu skriði og koma eflaust til með að standa uppi í hárinu á meisturunum. Framarar hafa unnið þrjá leiki í röð og eru til alls líklegir á heimavelli sínum í kvöld.
Í Vodafone-höllinni leiða saman hesta sína Valur og HK. Reikna má með hörkuleik en liðin eru að berjast við FH og Akureyri um að komast í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna. HK er í þriðja sæti með 19 stig en Valur í því fimmta með 18 stig svo um sannkallaðan fjögurra stiga leik er að ræða.
Í Kaplakrika tekur FH á móti grönnum sínum í Stjörnunni. Liðin áttust við á sama stað fyrir mánuði síðan og þá höfðu FH-ingar betur í jöfnum og spennandi leik, 25:22. Bæði lið þurfa á stigum að halda. FH-ingar eru í baráttu um að komast í úrslitakeppnina en þeir eru í fjórða sætinu með 19 stig en Stjörnumenn eru í bullandi fallbaráttu og sitja á botni deildarinnar með 7 stig.
Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.30 og verður fylgst með þeim hér á mbl.is.






