Enn ein rósin í hnappagat þjálfarans Alfreðs

Alfreð Gíslason er geysilega sigursæll. stækka

Alfreð Gíslason er geysilega sigursæll. mbl.is/Kristinn

Morgunblaðið Ívar Benediktsson iben@mbl.is

Alfreð Gíslason varð í fyrradag fyrsti þjálfarinn til þess að vinna Meistaradeild Evrópu í handknattleik með tveimur þýskum liðum þegar Kiel vann Barcelona, 36:34, í úrslitaleik í Köln. Síðan Meistaradeild Evrópu var hleypt af stokkunum haustið 1993 hafa þýsk handknattleikslið aðeins unnið keppnina þrisvar sinnum.

Þessi sigur er enn ein rós í hnappagat Alfreðs sem fyrir löngu hefur skipað sér á bekk meðal allrafærustu og -virtustu handknattleiksþjálfara heims.

Árangurinn nú er sérstaklega athyglisverður í ljósi þess að Alfreð hefur allt frá áramótum ekki getað stillt upp sínu sterkasta liði því nokkuð hefur verið um meiðsli meðal sterkra leikmanna í frekar fámennum leikmannahópi, sé tekið mið af ýmsum öðrum liðum.

Í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag er ítarlega fjallað um Alfreð og glæsilegan feril hans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is