Sturla Ásgeirsson í raðir Valsmanna
Sturla Ásgeirsson (14) í leik með íslenska landsliðinu á EM í Austurríki í byrjun árs. Kristinn Ingvarsson
Sturla Ásgeirsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur skrifað undir eins árs samning Val. Frá þessu var gengið í gær. Sturla hefur síðustu tvö árin leikið með Düsseldorf í Þýskalandi en var þar áður um fjögurra ára skeið hjá Århus GF.
„Úr því að rétta tilboðið kom ekki frá liðum í Evrópu þá ákvað ég að endurnýja kynnin af Júlíusi Jónassyni, þjálfara Vals. Ég lék um nokkurra ára skeið undir hans stjórn hjá ÍR," sagði Sturla í samtali við mbl.is fyrir fáeinum mínútum.
Sturla hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu síðustu tvö árin og var m.a. í silfurliðinu á Ólympíuleikunum Peking 2008 og bronsliðiðinu á EM í Austurríki í byrjun þessa árs.






