Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 4.9.2010
| 21:27
Rhein-Neckar á leið í Meistaradeildina
Rhein-Neckar Löwen bar í kvöld sigurorð af danska liðinu Bjerringbro/Silkeborg, 31:26, í öðrum leik sínum í undanriðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark. Guðjón Valur Sigurðsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
Rhein-Neckar hefur þar með unnið báða leiki sína og með sigri gegn Ademar Leon á morgun tryggir Íslendingaliðið sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






