Stórleikur eftir fjögurra ára hvíld

Rebekka Skúladóttir skoraði tvö mörk fyrir Val gegn Iuventa í kvöld. stækka

Rebekka Skúladóttir skoraði tvö mörk fyrir Val gegn Iuventa í kvöld. Mbl.is/Golli

„Mér finnst handboltinn hér heima hraðari og skemmtilegri og það er gaman að vera komin til baka aftur,“  sagði Guðný Jenný Ásmundsdóttir sem fór á kostum milli stanganna hjá Vals í 26:21 sigri á Iuventa frá Slóvakíu í 1. umferð EHF-keppni kvenna í handknattleik.

Guðný Jenný lék áður með Haukum, síðan nokkur ár í Noregi en hefur ekki spilað handbolta í fjögur ár, byrjaði aftur í janúar. Hún varði alls 27 skot í leiknum, þar af þrjú vítaköst og átti stóran þátt í góðum úrslitum, sem hún vildi samt hafa betri.

„Við byrjuðum vel og þetta var fínn leikur en mér fannst við missa einbeitinguna í lokin. Við áttum að halda þessari átta marka forystu, sem við vorum komnar með og það er súrt en sigurinn var góður og ég held að við eigum góðan möguleika í seinni leiknum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is