Valur með fimm marka forskot til Slóvakíu

Hrafnhildur Skúladóttir skoraði átta mörk í kvöld. stækka

Hrafnhildur Skúladóttir skoraði átta mörk í kvöld. mbl.is/Golli

Valskonur unnu í kvöld fimm marka sigur á Iuventa frá Slóvakíu í fyrri leik liðanna í EHF-bikarnum í handbolta, 26:21. Valsliðið var komið í góða stöðu, níu mörkum yfir, en Slóvakarnir skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins.

Valur komst í 11:2 í leiknum og staðan þegar liðin gengu til búningsklefa eftir fyrri hálfleik var 14:7. Það gæti hins vegar reynst dýrkeypt fyrir Hlíðarendaliðið að hafa slakað á klónni í lokin en liðin mætast að nýju um næstu helgi.

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í kvöld með 8 mörk, þar af 4 úr vítum, en Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 6 mörk. Guðný Jenný Ásmundsdóttir var hins vegar maður leiksins því hún varði 27 skot, þar af þrjú vítaköst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is