Björgvin Páll og félagar byrja vel

Björgvin Páll Gústavsson stækka

Björgvin Páll Gústavsson hag / Haraldur Guðjónsson

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, og félagar hans í svissneska meistaraliðinu Kadetten, fara vel af stað í svissnesku A-deildinni, en þar eiga þeir titil að verja. Þeir léku tvo leiki um helgina og unnu báða með miklum yfirburðum.

Á föstudag vann Kadetten liðsmenn HC Arbon á heimavelli, 40:19. Björgvin Páll lék fyrri hálfleikinn í marki Kadetten og fékk á sig níu mörk en varði átta skot, samkvæmt heimsíðu liðsins.

Í gær lagði Kadetten lið Lakers Stäfa, 46:27. Björgvin Páll lék aðeins tvær fyrstu mínúturnar í marki Kadetten þar sem hann snéri sig lítillega á ökkla snemma leiks. Björgvin Páll sagði við mbl.is að meiðslin væru ekki alvarlega. Þjálfari sinn hafi ekki viljað taka neina áhættu og skipt sér út af þar sem andstæðingurinn var ekki sterkur og varamarkvörður liðsins fullfær um að standa á milli stanganna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is