Íslendingar í danskri handboltaveislu

Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður AG, reynir að komast framhjá samherja sínum í íslenska landsliðinu, Ingimundi ... stækka

Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður AG, reynir að komast framhjá samherja sínum í íslenska landsliðinu, Ingimundi Ingimundarsyni varnarjaxli hjá AaB, í viðureign liðanna um helgina. Gísli Baldur Gíslason

Fjögur dönsk úrvalsdeildarlið í handknattleik hafa tekið höndum saman um að slá upp mikilli handboltaveislu í íþróttahöllinni í Herning á Jótlandi 6. nóvember. Þar verða a.m.k. þrír íslenskir landsliðsmenn í eldlínunni með félagsliðum sínum, Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson hjá AG Köbenhavn og AaB frá Álaborg með Ingimund Ingimundarson innanborðs.

Félögin tilkynntu í dag að þau ætli að bjóða upp á tveggja leikja handboltaveislu í Herning-höllinni 6. nóvember. Þá eigast við annarsvegar Danmerkur meistarar AaB frá Álaborg og Skjern og hinsvegar Bjerringbro/Silkeborg og AG Köbenhavn hinsvegar. Þrjú fyrsttöldu liðin eru öll frá Jótlandi þar sem „veislan“ að fara fram. Stefnt er á að fá 12.000 áhorfendur á leikina og bæta rækilega aðsóknarmet á handboltaleiki í Danmörku. Það er nú 6.300 áhorfendur en það var sett um helgina þegar AG og AaB áttust við í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í Ballrup-Arena í Kaupmannahöfn.

Fyrsti leikur AG Köbenhavn í Ballerup Arena um helgina vakti mikla athygli og umtal. Gríðarlega góð stemning var í keppnishöllinni enda hafði herskari manna frá AG unnið vikum saman við að kynna leikinn.  Meðal þess sem vakti mikla athygli á leiknum voru ermalausir keppnisbúninga AG liðsins. Víst þykir að liðsmenn munu ekki síður vekja athygli þegar þeir mæta Kolding á útivelli um næstu helgi því útivallarbúningur AG er appelsínugulur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is