Snorri Steinn í ermalausum bol
„Þetta var flott byrjun hjá okkur í deildinni, að leggja meistarana tiltölulega sannfærandi,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi hjá danska liðinu AG Kaupmannahöfn, eftir að liðið lagði Aab 29:25 í fyrstu umferð dönsku deildarinnar. Snorri Steinn gerði sjö mörk í leiknum og fyrirliði liðsins, Arnór Atlason, setti eitt.
Leikurinn fór fram á heimavelli AG og urðu ríflega 6.000 áhorfendur vitni að sigri liðsins í þessum stórleik. „Þetta er ágætishöll sem við spilum í, í það minnsta svona á danska vísu. Höllin er byggð sem reiðhjólahöll þar sem hjólabrautin er í hring. Síðan eru settir pallar með sætum fyrir handboltaleikina og það voru rúmlega 6.000 manns á leiknum og bara fín stemning.
Það var heljarinnar sýning og skemmtun fyrir leikinn en maður missti svo sem af því mesta þar sem maður var að hita upp og síðan bara inni í klefa. En þetta er svipað því sem maður á að venjast frá Þýskalandi og það má segja að þetta sé dálítið í þeim anda og tókst alveg glimrandi vel.“
Ekki hrifinn af ermalausu búningunum
Það vakti athygli að lið AG mætti til leiks í nýstárlegum búningum því keppnistreyjan er ermalaus, ekki ósvipuð þeim sem sum blaklið hafa leikið í síðustu árin. „Jaaaaá, ég er ekki hrifinn af þeim,“ sagði Snorri Steinn og hló. „Þetta er hræðilegt. Æ, ég veit ekki. Þetta er eitthvað nýtt frá Hummel og hluti af því að skapa umtal um liðið,“ sagði Snorri Steinn.
Viðtalið við Snorra er að finna í heild sinni í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






