Stórleikur Berglindar nægði ekki

Berglind Íris Hansdóttir fer vel af stað með Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í handbolta. stækka

Berglind Íris Hansdóttir fer vel af stað með Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í handbolta. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Berglind Íris Hansdóttir, landsliðsmarkvörður í handknattleik, lék afar vel í sínum fyrsta leik með norska úrvalsdeildarliðinu Fredrikstad um helgina þegar keppni í norsku úrvalsdeildinni hófst. Stórleikur hennar nægði þó liðinu ekki sem tapaði 26:20, fyrir Byåsen á heimavelli.  Fredrikstad er nýliði í deildinni en Byåsen varð í öðru sæti deildarinnar á síðasta keppnistímabili.

Berglind Íris gekk til liðs við Fredrikstad í sumar eftir að hafa leikið nær allan sinn feril með Val. Hún er aðalmarkvörður liðsins og stimplaði sig svo sannarlega inn í norsku úrvalsdeildina með afar góðum leik á heimavelli. Fredrikstad var tveimur mörkum undir í hálfleik, 10:8.

Levanger, liðið sem Ágúst Jóhannsson þjálfar og Rakel Dögg Bragadóttir landsliðskona leikur með, fór ekki vel af stað í norsku úrvalsdeildinni. Það tapaði á heimavelli, 20:17, fyrir Vipers Kristiansand. Fyrrverandi markvörður Levanger, sem nú leikur með  Kristiansand reyndist fyrrverandi samherjum sínum erfiður í leiknum.

Þrátt fyrir tapið þá lék Rakel Dögg vel. Hún skoraði þrjú mörk. Ramune Pekarskyte, fyrrverandi leikmaður Hauka sem gekk til liðs við Levanger í sumar, var í strangri gæslu allan leikinn og náði sér aldrei á strik. Hún skoraði aðeins tvö mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is