Björgvin Páll sneri sig á ökkla

Björgvin Páll Gústavsson. stækka

Björgvin Páll Gústavsson. mbl.is/Eggert

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, sneri sig á ökkla og gat af þeim ástæðum aðeins leiki tvær fyrstu mínútur leiks Kadetten og Lakers Stäfa á heimavelli síðastnefnda liðsins á sunnudagskvöld. Fjarvera Björgvins Páls kom þó ekki veg fyrir stórsigur Kadetten, 46:27.

Kadetten hefur byrjað titilvörnina í svissnesku A-deildinni af krafti og unnið tvo fyrstu leiki sína með miklum mun.

Björgvin Páll sagði við Morgunblaðið að ökklameiðslin hefðu ekki verið alvarleg. „Þjálfarinn vildi ekki tefla á tvær hættur með mig í þessum leik, því andstæðingurinn var ekki mjög sterkur, og tók mig því út af,“ sagði Björgvin Páll sem mættur var á æfingu með liði sínu í gær.

Næsti leikur Kadetten í deildinni verður við Fortitudo Gossau á heimavelli á laugardaginn. Auk titilvarnarinnar í heimalandinu er mikil eftirvænting í herbúðum Kadetten vegna þátttöku liðsins í Meistaradeild Evrópu á leiktíðinni. Fyrsti leikur Kadetten verður á heimavelli gegn ungverska liðinu Pick Szeged laugardaginn 25. september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is