Íslendingar í sigurliðum

Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður Team Esbjerg. stækka

Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður Team Esbjerg. Eggert Jóhannesson

Íslensku landsliðskonurnar í handknattleik og fyrrverandi leikmenn HK, Arna Sif Pálsdóttir og Rut Jónsdóttir, voru báðar í sigurliðum þegar fyrsta umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik var leikin í gærkvöldi. 

Arna Sif, sem gekk til liðs við Team Esbjerg í sumar frá Horsens HK, skoraði tvö mörk og var einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur þegar lið hennar vann SK Aarhus, 28:23, í Árósum.

Rut Jónsdóttir skoraði þrjú mörk þegar Team Holstebro vann stórsigur á nýliðum SönderjyskE, 30:20, á útivelli á suður Jótlandi. Rut er nú að hefja sitt þriðja keppnistímabil með Team Holstebro en hún endurnýjaði samning sinn við félagið í vor til tveggja ára.

FIF frá Friðriksbergi í nágrenni Kaupmannahafnar tapaði á heimavelli fyrir KIF Kolding, 28:19. Þorgerður Anna Atladóttir, sem gekk til liðs við FIF í sumar, var ekki á meðal markaskorara liðsins í gær. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is