Guðmundur: Biður þjóðina afsökunar(myndskeið)

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segist biðja íslensku þjóðina afsökunar á framgöngu íslenska landsliðsins gegn Þjóðverjum í undankeppni EM í handknattleik í Halle í dag. Þjóðverjar unnu leikinn, 39:28.

Guðmundur sagði að það væri hreint óskiljanlegt að jafn leikreynt lið og það íslenska hafi fallið í þá gryfju sem það íslenska féll í að þessu sinni. Það eigi ekki að geta átt sér stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert