Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 27.1.2012
| 8:22
Akureyringar endurheimta Andra Snæ
Karlalið Akureyrar í handboltanum fær góðan liðsstyrk um mánaðarmótin en þá snýr hornamaðurinn Andri Snær Stefánsson aftur í liðið. Andri er að koma heim aftur eftir dvöl í Danmörku síðasta eina og hálfa árið þar sem hann hefur spilað með Odder Håndbold.
Að því er fram kemur á vef Akureyrarliðsins lék Andri Snær fyrstu fjögur árin með liðinu eftir að Þór og KA sameinuðust. Hann hefur spilað samtals 99 leiki með liðinu í deild og bikar og var valinn besti leikmaður þess tímabilið 2006-07 og 2008.
Eftir erfiða byrjun á leiktíðinni óx Akureyringum ásmegin og er liðið í 4.-5. sæti N1-deildarinnar með 14 stig. FH og HK eru með 15 stig í 2.-3. sæti en Haukarnir tróna á toppnum með 20 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






