Birna Berg á sjúkralistanum út árið

Birna Berg Haraldsdóttir, skyttan efnilega hjá Fram, var valin í lið umferða 1-9 í N1-deild kvenna í handknattleik. Er það sárabót fyrir Birnu sem sleit á dögunum krossband í hné og verður frá handknattleiksiðkun út þetta ár ef að líkum lætur.

Birna tjáði mbl.is í dag að hún muni fara í aðgerð í næsta mánuði. Gera þarf við fleira en krossbandið og segja má að óhappið hafi haft eins slæmar afleiðingar og mögulegt var. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar


finnur.is