Haukar hafa verið áberandi bestir
Kristján Arason, þjálfari Íslandsmeistara FH, mætir Haukum í Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum Eimskips-bikarkeppninnar. „Jú það má eiginlega segja að það sé dæmigert að þessi lið dragist saman og a
nsi oft sem liðin mætast tvívegis á skömmum tíma því við eigum leik við þá fjórum dögum fyrr í deildinni. Leikir Hauka og FH eru miklar rimmur og þetta eru tvö efstu liðin í deildinni. Þeir hafa verið áberandi bestir í vetur og þetta er áskorun sem við ætlum að taka,“ sagði Kristján.
Hann segir heimavöllinn ekki hafa skipt öllu máli í gegnum tíðina. „Nei hann hefur ekki gert það síðustu þrjátíu eða fjörutíu árin. Þetta hafa verið hörkuleikir þótt annað liðið hafi verið í toppsæti og hitt í botnsæti. Ég hef alltaf sagt að til að verða bikarmeistari getur maður ekki vonast eftir auðveldri leið. Það endar alltaf með skelfingu.“






