Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 28.1.2012
| 18:22
| Uppfært
29.1.2012
19:46
Haukar sterkari í Hafnarfirðinum
Haukar unnu FH í N1-deild kvenna í handbolta í dag, 32:23 og fyrr í dag vann ÍBV lið Gróttu á Nesinu 19:26.
Hafnarfjarðarslagurinn varð ekki spennandi enda staðan 16:12 í hálfleik. Markahæst var Diana Sigmarsdóttir með 7 mörk og Ásta Björk Agnarsdóttir gerði 6, en hjá FH var Berglind Ósk Björgvinsdóttir með 5 mörk.
Á Seltjarnarnesi var ÍBV 9:12 yfir í leikhléi og náði Grótta ekki að ógna sigri Eyjakvenna í síðari hálfleik. Þórsteina Sigurbjörnsdóttir gerði 8 mörk fyrir ÍBV en hjá Gróttu var Sunna María Einarsdóttir með 6 mörk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






