Öruggur sigur Vals

Hrafnhildur Skúladóttir stækka

Hrafnhildur Skúladóttir mbl.is

Valur heldur uppteknum hætti í N1-deild kvenna en liðið lagði Stjörnuna 24:15 í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda en þar hefur liðið ekki tapað stigi í vetur.

Leikurinn var í jafnvægi framan af en Valur síðan með 9:7 forystu í hálfleik og eftir það skildi leiðir.

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst hjá Val með 7 mörk og Dagný systir hennar var með fimm eins og Sólveig Lára Kjærnested hjá Stjörnunni.

Valur er með 16 stig eftir fyrsta leik 9. umferðar en Fram kemur þar á eftir með 14 og á leik til góða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar


finnur.is