Óvissa hjá Heimi

Heimir Örn Árnason í leik gegn FH-ingum. stækka

Heimir Örn Árnason í leik gegn FH-ingum. mbl.is/Þórir Tryggvason

Óvissa ríkir um þátttöku Heimis Arnar Árnasonar með liði Akureyrar í handboltanum en meiðsli í hálsi hafa verið að plaga leikstjórnandann snjalla.

„Þetta lítur svo sem ekkert allt of vel út hjá mér. Það hefur komið í ljós myndun að brjóklosi í hálsliðunum og þar að auki er ég tognaður í hælnum. Það er bunga út úr hálsliðunum og ef ég hefði fengið slæmt högg á hálsinn í þeim leikjum sem ég spilaði svona þá væri ég búinn eða á leið í aðgerð. Ég spilaði þrjá leiki en ég var bara stálheppinn að fá ekkert högg á hálsinn. Góðu fréttirnar eru þær að þetta er eitthvað að ganga til baka og mér líður betur en ég hef fundið fyrir miklum doða og kraftleysi á vinstri hlið líkamans,“ sagði Heimir Örn við Morgunblaðið í gær.

Heimir segir óvíst hvenær hann spili á nýjan leik.

„Ef þessi bunga springur, sem hún alveg við að gera, þá verð ég frá keppni í alla vega hálft ár. Ég verð því að fara mjög varlega og fara aftur í myndatöku áður en ég fer af stað í handboltanum til að vita hvort þetta sé gengið til baka. Það má segja að það sé óvissuástand hjá mér en ég þarf auðvitað að fara varlega. Sjúkraþjálfarinn og læknarnir sögðu mér að ég yrði líka að hugsa um lífið eftir boltann, þannig að ég það í huga,“ sagði Heimir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar


finnur.is