Geta fengið leik við Noreg fyrir ÓL-umspil

Aron Pálmarsson sækir að vörn Norðmanna í leik þjóðanna á EM. stækka

Aron Pálmarsson sækir að vörn Norðmanna í leik þjóðanna á EM. Reuters

Íslenska landsliðinu í handknattleik karla stendur til boða að mæta norska landsliðinu í vináttulandsleik áður en það tekur þátt í umspilsleikjum fyrir Ólympíuleikana í byrjun apríl.

Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að Norðmenn séu tilbúnir að mæta íslenska landsliðinu í Laugardalshöll í vikunni fyrir páskahelgina þegar umspilsleikirnir fara fram. Að sögn Einars hefur HSÍ ekki þekkst boð Norðmanna en meiri líkur en minni eru á að því verði tekið.

Lítill tími gefst til undirbúnings fyrir ólympíuumspilið sem fram fer 6.-8. apríl. Síðar í dag kemur í ljós hvar og við hverja íslenska landsliðið leikur í umspilinu.

Unnið er að því að fá landsleik í byrjun júní áður en að leikjunum við Hollendinga kemur í undankeppni HM. Möguleiki er á að íslenska landsliðið mæti þá Dönum en HSÍ á hönk upp í bakið á danska handknattleikssambandinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is