Helga sækist eftir endurkjöri
Helga Magnúsdóttir sækist eftir endurkjöri til framkvæmdastjórnar EHF á þingi þess í júní. Rax / Ragnar Axelsson
Helga Magnúsdóttir, sem hefur átt sæti í framkvæmdastjórn Handknattleikssambands Evrópu, EHF, síðustu 12 ár , hefur ákveðið að sækjast eftir endurkjöri á þingi EHF sem fram fer í Mónakó 22. og 23. júní á þessu ári.
Kjörtímabil Helgu rennur út í vor en kjörið er til framkvæmdastjórnar til fjögurra ára í einu. Helga hefur setið í mótanefnd kvenna í framkvæmdastjórninni en getur ekki tekið sæti í þeirri nefnd á nýjan leik, nái hún endurkjöri, þar sem ekki er heimilt að sitja lengur í hverri nefnd en 12 ár.
Fyrir helgina lýsti forseti EHF, Norðmaðurinn Tor Lian, að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í júní. Núverandi varaforseti, Jean Brihault, hefur tilkynnt um framboð sitt en vera kann að fleiri vilji hreppa hnossið. Vitað er að Norður-Evrópuríki, m.a. Norðurlöndin, sækja það ákaft að fá sinn fulltrúa í embætti varaforseta EHF á þinginu í Mónakó.






