Ísland mætir Hollandi í umspili HM

Íslenska landsliðið mætir Hollandi í umspilinu. stækka

Íslenska landsliðið mætir Hollandi í umspilinu. Reuters

Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir Hollendingum í tveimur umspilsleikjum um sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer á Spáni eftir ár. Leikirnir fara fram í 9. eða 10. júní  og 16. eða 17. júní og á Ísland heimaleikinn fyrri helgina. Sigurliðið í leikjunum tveimur tryggir sér keppnisrétt á HM.

Dregið var fyrir stundu í Beogradska íþróttahöllinni í Belgrad. Ísland var þriðja síðasta landið sem dregið var upp úr hattinum af þeim þjóðum sem voru eftir í fyrsta styrkleikaflokki. Þá voru Holland, Bosnía og Svartfjallaland eftir í neðri styrkleikaflokknum.

Aðrir leikir umspilsins eru eftirfarandi:

Litháen - Pólland
Rússland - Tékkland
Slóvenía - Portúgal
Slóvakía - Hvíta-Rússland
Makedónía - Austurríki
Ungverjaland - Noregur
Þýskaland - Bosnía
Svíþjóð - Svartfjallaland

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is