Getum verið mjög sáttir

Guðmundur ræðir við leikmenn sína á EM. stækka

Guðmundur ræðir við leikmenn sína á EM. Reuters

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik, segist vera sáttur með mótherja Íslendinga, bæði í umspili fyrir heimsmeistaramótið og í undankeppni fyrir Ólympíuleikana.

Íslendingar drógust á móti Hollendingum í umspili fyrir HM og síðan varð það ljóst eftir að Danir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn að Ísland leikur í riðli með Króatíu, Japan og Síle í undankeppni fyrir Ólympíuleikana og verður riðilinn spilaður í Króatíu í byrjun apríl.

„Miðað við það sem var í boði þá held ég að við getum verið sáttir við að mæta Hollendingum. Hins vegar er engin ástæða til að vanmeta þá því eins og handboltinn er orðinn í dag þá þarf að taka öll lið alvarlega alveg sama hvað þau heita. Við verðum að fara á fullum krafti í þessa leiki á móti Hollendingunum,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gærkvöld.

Sjá lengra viðtal við Guðmund í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is