Vongóður að Ólafur og Snorri spili

Ólafur Stefánsson. stækka

Ólafur Stefánsson. mbl.is/Golli

Guðmundur Þórður Guðmundsson gerir sér góðar vonir um að þeir Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson verði báðir með íslenska landsliðinu þegar það leikur í undankeppni fyrir Ólympíuleika í apríl og í umspilsleikjum fyrir HM gegn Hollendingum í júní.

„Ég vonast til þess að þeir komi báðir inn í hópinn. Óli stefnir að því sjálfur að gefa kost á sér en auðvitað vitum við ekki á þessari stundu hvort af því getur orðið. Þeir drengir sem spiluðu hans stöðu úti í Serbíu stóðu sig virkilega vel en auðvitað myndi það styrkja lið okkar gríðarlega að fá Óla og Snorra aftur í hópinn og að því er stefnt,“ sagði Guðmundur Guðmundsson við Morgunblaðið í gær.

Ólafur gaf ekki kost sér á Evrópumótið þar sem hann er svo til nýstiginn upp úr meiðslum og Snorri komst ekki á mótið af fjölskylduástæðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is