Elín Anna: Stella tók leikinn í sínar hendur

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Elín Anna Baldursdóttir skoraði þrjú mörk fyrir HK sem tapaði fyrir Fram 23:20 í N1-deild kvenna í handknattleik í kvöld. HK er eina liðið sem hefur unnið Fram í deildinni í vetur og vildi Elín sýna að það hafi ekki verið nein tilviljun.

HK náði í það minnsta að sýna að þær geta vel staðið í Fram en hún sagði hafa vantað aðeins meiri baráttu og einbeitingu í lokin til að taka stigin tvö. Hún vildi ekki meina að reynsluleysi hefði orðið þeim að falli en Fram skoraði 4 síðustu mörk leiksins.

„Við spiluðum frábæra vörn allan leikinn nema síðustu fimm mínúturnar. Þá tók Stella leikinn í sínar hendur,“ sagði Elín um framgöngu liðsins.

Hún sagði jafnframt að liðið færi í alla leiki til að vinna, sama hver andstæðingurinn væri og að þær ætluðu sér að ná eins góðu sæti og mögulegt væri fyrir úrslitakeppnina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is