Fram upp að hlið Vals eftir sigur á HK
Úr leik liðanna í kvöld - Ásta Birna Gunnardóttir sækir að vörn HK þar sem þær Brynja Magnúsdóttir (10) og Elísa Ósk Viðarsdóttir verjast. mbl.is/Kristinn
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isHK og Fram mætust í N1-deild kvenna í handknattleik í kvöld klukkan og eftir æsispennandi lokamínútur var það Fram sem hafði betur 23:20. Þær náðu því Val að stigum í efsta sæti deildarinnar en HK er eins og ÍBV með 12 stig í 3.-4. sæti deildarinnar.
Reynslan var Fram dýrmæt undir lok leiks þegar þær breyttu stöðunni úr 20:19 í 20:23. Markahæst hjá Fram var Stella Sigurðardóttir með 10 en hjá HK var það Brynja Magnúsdóttir sem skoraði mest eða sex.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is í beinni textalýsingu fyrir neðan liðsskipan.
Lið HK: Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir (m), Dröfn Haraldsdóttir (m), Tinna Rögnvaldsdóttir, Sigríður Hauksdóttir, Gerður Arinbjarnar, Elísa Ósk Viðarsdóttir, Brynja Magnúsdóttir, Jóna Sigríður Halldórsdóttir, Heiðrún Björk Helgadóttir, Elín Anna Baldursdóttir, Elva Björg Arnarsdóttir, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, Harpa Baldursdóttir, Arna Björk Almarsdóttir.
Lið Fram: Guðrún Ósk Maríasdóttir (m), Karen Ösp Guðbjartsdóttir (m), Guðrún Þóra Háldánsdóttir, Hekla Rún Ámundadóttir, Marthe Sördal, Stella Sigurðardóttir, Anett Köbli, Ásta Birna Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Sunna Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir, María Karlsdóttir, Steinunn Björnsdóttir.
60. Leik lokið með sigri Fram 23:20.59. Ein og hálf mínúta eftir og Fram er búið að ná tveggja marka forystu 20:22. Ásta Birna stal boltanum í vörninni hjá Fram og brunaði fram völlinn og skoraði 22. markið. HK verður einum manni færri næstu mínútuna og verkefnið því orðið erfitt.
55. Guðrún Ósk var að verja vítakast hjá Fram og koma í veg fyrir að HK kæmist tveimur mörkum yfir. Staðan þegar 5 mínútur eru eftir er því 20:19 HK í vil.
50. Staðan er 19:18 þegar 10 mínútur eru eftir en HK var manni færri síðustu tvær mínúturnar og fórst það ágætlega úr hendi.
45. HK er komið með tveggja marka forskot 17:15 og Ólöf Kolbrún heldur áfram að verja vel í marki HK.
38. Elísabet er búin að jafna metin fyrir Fram, 14:14. Það er komin mun meiri barátta og læti í leikmenn en var í fyrri hálfleik og þá fékk Einar Jónsson, þjálfari Fram, gult spjald rétt í þessu fyrir mótmæli.
34. HK skorar fyrsta mark seinni hálfleiks eftir þrjár og hálfa mínútu en þar var að verki Heiðrún Björk. Staðan því 13:11.
31. Seinni hálfleikur er hafinn.
30. Hálfleikur - HK er óvænt yfir í hálfleik 12:11 en Fram byrjaði hálfleikinn mun betur og komst meðal annars í 2:6. Þá sögðu leikmenn HK hingað og ekki lengra, bættu sóknarleik sinn til muna og náðu fyrst að jafna í stöðunni 11:11. Harpa Baldursdóttir skoraði svo síðasta mark hálfleiksins af línunni og kom þeim yfir. Markahæst hjá HK er Heiðrún Björk með 3 mörk en þá hefur Ólöf Kolbrún staðið sig mjög vel milli stanganna og varið 11 skot, þar af eitt víti. Hjá Fram er það sem fyrr Stella sem er fyrirferðarmikil en hún er með 6 mörk. Þá hefur hún klúðrað tveimur vítaköstum sem hefur reynst Fram dýrkeypt. Guðrún Ósk hefur líkt og Ólöf varið vel eða 10 skot.
28. Einar Jónsson, þjálfari Fram, tekur leikhlé þegar tvær og hálf mínúta er eftir af fyrri hálfleik og staðan 10:11 Fram í vil. Hann virðist allt annað en sáttur með baráttuna og stemninguna í leikmönnum Fram sem eru seinir til baka.
25. HK hefur minnkað muninn í eitt mark 9:10 en Fram hefur klúðrað öllum þremur vítaköstunum sem liðið hefur fengið í fyrri hálfleik. Stella tveimur og Elísabet einu.
21. Þrátt fyrir að það hafi liðið 7 mínútur á milli marka hjá Fram er staðan engu að síður 9:6. HK náði ekki að nýta sér liðsmuninn þegar Elísabet fékk tvær mínútur hjá Fram.
15. Sóknarleikur HK gengur mun betur núna en fyrstu 10 mínútur leiksins og hafa þær skorað þrjú mörk á síðustu fimm mínútum. Staðan er því 7:5 Fram í vil.
10. Stella skorar annað mark sitt og fjórða mark Fram en staðan er 4:2. Brynja Magnúsdóttir er búin að skora bæði mörk HK.
5. Staðan er 2:1 Fram í vil þegar fimm mínútur eru liðnar. Stella Sigurðardóttir skoraði fyrsta mark leiksins. Bæði lið eru að spila ágæta vörn en sóknarleikurinn svolítið vandræðalegur þá sérstaklega hjá HK. Eina mark þeirra kom úr vítakasti.
1. Leikurinn er hafinn og er það Fram sem byrjar í sókn.
0. Gústaf Adolf Björnsson, þjálfari Stjörnunnar, er einn af fáum áhorfendum í kvöld en hann er væntanlega að skoða HK en þau eigast við í næstu umferð.







