Guðjón Valur yfirgefur AG
Guðmundur Hilmarsson Ívar Benediktsson
Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, er að öllum líkindum á förum frá félaginu í sumar og bendir allt til þess að næsti viðkomustaður hans verði þýska stórliðið Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar og Aron Pálmarsson leikur með. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að viðræður um félagaskipti Guðjóns til Kiel séu komnar af stað.
„Það er ekkert komið á hreint með mína framtíð en hins vegar er ég ekki lengur með tilboð frá AG Köbenhavn. Staðreyndin er sú að í samningi mínum stóð að ég hefði tíma til að svara þeim fyrir 31. janúar en ég fékk það ekki. Þeir tóku það af mér,“ sagði Guðjón Valur við Morgunblaðið í gær en samningur hans við Kaupmannahafnarliðið rennur út í sumar.
Átt þú von á einhverjum tilboðum á næstunni?
„Ég er að vonast til þess. Umboðsmaður minn var á Evrópumótinu í Serbíu um helgina og hann hitti meðal annars forráðamenn frá Kiel og frá fleiri liðum og var að kanna hvað möguleika ég ætti. Ég bíð spenntur að sjá hvað kom út úr þessu og ég reikna með að heyra frá umboðsmanninum í dag eða á morgun,“ sagði Guðjón Valur.
Sjá lengra viðtal við Guðjón Val í Morgunblaðinu í dag.






