Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 31.1.2012
| 11:59
| Uppfært
14:23
Hedin verður að hætta hjá Álaborg
Svíinn Robert Hedin þjálfari norska karlalandsliðsins í handknattleik hættir sem þjálfari hjá danska úrvalsdeildarliðinu Álaborg í lok leiktíðarinnar að kröfu norska handknattleikssambandsins.
,,Ég verð bara að taka þessu og er ekkert bitur yfir þó svo ég hefði viljað vera áfram í starfi hjá Álaborg samhliða landsliðsþjálfarastarfinu,“ segir Hedin við norska fjölmiðla.
Hedin tók við þjálfun norska landsliðsins af Gunnari Pettersen árið 2008 og er samningsbundinn norska handknattleikssambandinu til ársins 2014. Norðmenn voru í riðli með Íslendingum á Evrópumótinu í Serbíu þar sem þeir höfnuðu í neðsta sæti og komust ekki í milliriðil.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






