Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 31.1.2012
| 10:01
| Uppfært
11:23
Hens segir skilið við þýska landsliðið
Pascal Hens, stórskytta úr þýska meistaraliðinu Hamburg, hefur ákveðið að segja skilið við þýska landsliðið og einbeita sér alfarið að félagsliðinu. Hens lék með Þjóðverjum á Evrópumótinu í Serbíu.
Hens, sem 2,03 metrar á hæð, hóf feril sinn með þýska landsliðinu árið 2001 og leikirnir eru samtals orðnir 199 og mörkin 565 talsins. Hann varð Evrópumeistari með Þjóðverjum árið 2004, vann silfur á Ólympíuleikunum 2004 og heimsmeistaratitilinn á heimavelli 2007.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






