Ótrúlega sigursæll

Ulrik Wilbek. stækka

Ulrik Wilbek. Reuters

Danski handboltaþjálfarinn Ulrik Wilbek fer kannski í taugarnar á mörgum, ekki síst Íslendingum, en það getur enginn efast um hæfileika hans sem þjálfara. Hann hefur reynst ákaflega sigursæll og er líklega einn sigursælasti handboltaþjálfarinn frá upphafi.

Undir stjórn Wilbeks hampaði danska karlalandsliðið Evrópumeistaratitlinum í fyrradag eftir sigur á Serbum í úrslitaleik í Belgrad. Þetta voru fimmtu verðlaun Dana á stórmóti undir stjórn Wilbeks en þeir unnu bronsið á EM 2006, brons á HM 2007, gull á EM 2008 og silfur á HM 2011.

En Wilbek gerði enn betur með kvennalandslið Dana því liðið vann til sex verðlauna á stórmóti þegar hann var við stjórnvölinn. Það vann silfur á HM 1993, gull á EM 1994, brons á HM 1995, gull á Ólympíuleikunum 1996, gull á EM 1997 og gull á HM 1997. Wilbek hefur því á þjálfaraferli sínum unnið til 11 verðlauna á stórmóti sem er einstakur árangur.

Sjá meira um lífshlaup Ulriks Wilbeks í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is