Stella: Get ekki útskýrt þetta

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Stella Sigurðardóttir skoraði 10 mörk og var helsta ástæðan fyrir því að Fram vann HK 23:20 þegar liðin mættust í Digranesi í kvöld. Stella sagðist ekki geta útskýrt afhverju leikmenn liðsins virtust hálfdofnir og þreyttir en sagði það ekki erfiðum æfingum að undanförnu að kenna.

Það sýnir ef til vill betur en annað styrk liðsins að vinna engu að síður þriggja marka sigur á liðinu í þriðja sæti N1-deildarinnar í handknattleik.

Hún sagði Fram hafa litið á þennan leik sem tækifæri til að hefna ófaranna gegn HK í fyrstu umferð þegar HK hafði sex marka sigur og er enn eina liðið sem unnið hefur Fram í deildinni á þessu keppnistímabili.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is