Wilbek hættir 2014

Wilbek og lærisveinar hans hampa Evrópumeistaratitlinum í fyrradag. stækka

Wilbek og lærisveinar hans hampa Evrópumeistaratitlinum í fyrradag. Reuters

Ulrik Wilbek þjálfarinn frábæri sem gerði Dani að Evrópumeisturum á sunnudaginn er staðráðinn í að hætta eftir Evrópumótið 2014 en það verður haldið í Danmörku.

,,Ég stend fast við ákvörðun mína. Evrópumótið í Danmörku 2014 verður mitt síðasta mót,“ sagði Wilbek við danska ríkissjónvarpið en þessi 53 ára gamli þjálfari hefur náð frábærum árangri. Danska karlalandsliðið hefur unnið til fimm verðlauna á stórmóti undir hans stjórn og danska kvennalandsliðið vann til sex verðlauna á stórmótum með hann við stjórnvölinn.

Wilbek ætlar þó ekki að hætta afskiptum af handbolta en hann hefur átt í viðræðum við danska handknattleikssambandið um að taka við starfi íþróttastjóra.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is