AG semur við sænskan landsliðsmann

Magnus Andersson þjálfari AG Köbenhavn. stækka

Magnus Andersson þjálfari AG Köbenhavn. Reuters

Danska meistaraliðið AG Köbenhavn, sem fjórir Íslendingar leika með, hefur gert samning við sænska landsliðsmanninn Fredrik Petersen sem leikur með Bjerringbro/Silkeborg í Danmörku.

Petersen, sem er 29 ára gamall og leikur í stöðu vinstri hornamanns, mun ganga í raðir AG Köbenhavn í sumar en samningur hans verður til þriggja ára. Hann var í leikmannahópi Svía á Evrópumótinu í Serbíu.

Arnór Atlason, Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson leika allir með Kaupmannahafnarliðinu og þá er Ólafur Andrés Guðmundsson samningsbundinn því en hann er í láni hjá Nordsjælland.

Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær er Guðjón Valur á förum frá AG Köbenhavn til þýska liðsins Kiel og er Svíanum ætlað að fylla skarð hans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is