Ástandið er ekki gott
„Ástandið á Alexander er ekki nógu gott. Hann er ennþá slæmur í öxlinni og ég reikna ekki með því að hann spili með okkur í fyrstu leikjunum eftir fríið. Því miður,“ sagði Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Füchse Berlín, við Morgunblaðið í gær.
Dagur hefur náð frábærum árangri með lið Füchse Berlin en það er í öðru sæti Bundesligunnar, fimm stigum á eftir Kiel. Fyrsti leikur liðsins eftir fríið verður gegn meisturum Hamburg á útivelli 8. febrúar.
Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson, lærisveinn Dags hjá Berlínarliðinu, glímir við meiðsli í vinstri öxlinni og varð íslenska landsliðið fyrir barðinu á því en hann gat lítið beitt sér á Evrópumótinu í Serbíu og kom ekkert við sögu í þremur síðustu leikjum liðsins á mótinu sem var svo sannarlega skarð fyrir skildi.
„Það eru fleiri læknar að kíkja á hann og við bíðum eftir að sjá hvað kemur út úr því, hvort eitthvað þurfi að gera, fara í annars konar meðferð eða hvíla hann í lengri tíma. Við þurfum að skoða alla möguleika. Hann er búinn að fara í sneiðmyndatök og þar komu í ljós bólgur en þetta eru ekki sömu meiðsli og hann átti við að stríða í fyrra. Við misstum hann í meiðsli á sama tíma í fyrra og það hafði töluverð áhrif á gengi liðsins,“ sagði Dagur en Alexander gegnir stóru hlutverki í liði Füchse Berlín, bæði í vörn og sókn.






