Fram fær tvo leikmenn frá Stjörnunni
Nokkuð var um hreyfingar hjá íslenskum handboltamönnum í janúar en félagaskiptaglugginn lokaði í gær. Fram fékk til sín tvo unga leikmenn frá Stjörnunni, þá Jón Arnar Jónsson og Hákon Stefánsson. Sá síðarnefndi þekkir vel til hjá Fram eftir að hafa spilað með liðinu undanfarin ár. Hann yfirgaf félagið í sumar og gekk til liðs við Stjörnuna. Hákon, sem er 24 ára, er uppalinn hjá KA á Akureyri.
Jón Arnar er uppalinn hjá Stjörnunni og ætti að auka breiddina hjá Fram en hann spilar í vinstra horninu. Hákon er hinsvegar skytta og getur einnig spilað í stöðu leikstjórnanda.
Þá lánaði FH markvörðinn Sigurð Örn Arnarson til ÍR út leiktíðina en ÍR spilar í 1. deildinni. Sigurður Örn var annar markvörður FH í fjarveru Pálmars Péturssonar í upphafi móts. Nú þegar Pálmar er kominn aftur var ljóst að Sigurður Örn hefði verið þriðji markvörður liðsins.
Fyrr í mánuðinum fékk Akureyri svo Andra Snæ Stefánsson frá danska liðinu Odder Handbolt, eins og áður hefur verið greint frá hér á mbl.is.
Hjá konunum voru e.t.v. stærstu skiptin þegar Anett Köbli fékk félagsskipti frá Val í Fram þar sem hún hefur þegar leikið sinn fyrsta leik. Anett hafði ekki leikið með Val á tímabilinu.
Alls voru tæplega 50 félagaskipti tilkynnt til HSÍ í janúar.






