Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 1.2.2012
| 17:36
| Uppfært
18:21
Ingvar og Jónas dæmdu leik Suður-Kóreu og Japans
Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson handknattleiksdómarar dæmdu þriðja leik sinn á Asíumóti karla sem fram fer í Jeddah í Sádi-Arabíu í dag. Það var stórleikur Suður-Kóreu og Japans en bæði lið voru komin áfram í keppninni.
Japan tapaði með minnsta mun, 28:17, en staðan í hálfleik var 14:13, Suður-Kóreu í vil. Japanar sem verða andstæðingar Íslands í forkeppni Ólympíuleikanna höfnuðu því í öðru sæti með 4 stig líkt og Íran og Kúveit en með betri innbyrðisviðureignir. Suður-Kórea fór áfram með fullt hús stiga.
Ingvar og Jónas hafa fengið góða dóma fyrir frammistöðu sína hingað til. Þeir félagar dæmdu opnunarleikinn á mótinu og svo viðureign Japans og Kúveit sem endaði með sigri Japans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






