Sesum er á batavegi

Zarko Sesum fagnar marki á EM. stækka

Zarko Sesum fagnar marki á EM. Reuters

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen, gerir sér vonir um að serbneski landsliðsmaðurinn Zarko Sesum verði búinn að ná sér af meiðslum sem hann hlaut á auga fyrir leik liðsins gegn Balingen í næstu viku. Þá hefst keppni að nýju í Bundesligunni eftir Evrópumótið í Serbíu.

Sem kunnugt er meiddist Sesum illa á auga í undanúrslitaleik Serba og Króata þegar peningi var kastað í hann og var hans sárt saknað í úrslitaleiknum um Evrópumeistaratitilinn gegn Dönum.

„Sesum er á batavegi. Þetta leit ansi illa út en ég vona að bólgan sé á undanhaldi og hann geti spilað með okkur á móti Balingen,“ segir Guðmundur á vef Rhein-Neckar Löwen.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is