Andstæðingar Íslands í undanúrslit
Japan sem verður mótherji íslenska karlalandsliðsins í handknattleik í forkeppni Ólympíuleikanna tryggði sér sæti í undanúrslitum á Asíumótinu í gær. Það mátti þó ekki tæpara standa en Japan tapaði fyrir Suður-Kóreu, 28:27, í síðasta leik riðlakeppninnar.
Japan fór engu að síður áfram á betri innbyrðis viðureignum við Írani og Kúveit sem bæði sitja eftir með sárt ennið ásamt Jórdaníu. Suður-Kórea fór áfram með fullt hús stiga úr riðlinum.
Íslendingar hafa átt sína fulltrúa á mótinu en dómaraparið Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson dæmdu viðureign Suður-Kóreu og Japans í gær. Þá höfðu þeir áður dæmt tvo leiki á mótinu, meðal annars opnunarleikinn. Þeir hafa fengið góða dóma fyrir sín störf.
Suður-Kórea mætir gestgjöfum Sádi-Arabíu í undanúrslitunum en Japan sigurvegurum B-riðils, Katar.
Erfitt getur verið að meta styrk asísku þjóðanna en fyrir utan Suður-Kóreu tapaði Japan einnig fyrir Íran sem ekki er þekkt fyrir mörg afrek á handboltavellinum.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, ætti því að geta, auk þess að horfa á leiki, rætt við þá Ingvar og Jónas um japanska liðið sem er eins og áður segir með Íslandi í riðli í undankeppninni fyrir Ólympíuleikana.
Króatía og Síle eru auk þess í riðli Íslands sem spilaður verður á heimavelli fyrrnefnda liðsins 6.-8. apríl.






