Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 21:51
| Uppfært
22:15
Anton: Eigum mikið inni
Anton Rúnarsson skoraði 10 marka Vals í kvöld þegar liðið vann sjö marka sigur á Haukum, 25:18. Hann sagði sigurinn mjög mikilvægan og kærkominn eftir 11 marka tap í bikarleik liðanna fyrr í vetur.
„Þeir eru verðskuldað á toppnum og hafa spilað hrikalega vel en við eigum mikið inni og náðum alla vega að sýna það í dag. Vonandi höldum við svona áfram,“ sagði Anton meðal annars.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






