Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 21:58
| Uppfært
22:13
Aron: Spark í rassgatið á mönnum
Aron Kristjánsson þjálfari Hauka sagði andlegan undirbúning sinna manna hafa valdið því að liðið tapaði fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld. Hann sagði aðvörunarbjöllur klingja og að þessi leikur sýndi að aldrei mætti slaka á.
„Þetta er ágætis spark í rassgatið á mönnum. Þetta er fyrsti leikurinn í vetur þar sem ég get sagt að menn hafi verið illa einbeittir og værukærir. Því fór sem fór. Við getum ekki leyft okkur svona,“ sagði Aron meðal annars.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






