Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 22:19
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Einar: Það duttu út póstar
Jóhann Karl Reynisson brýst í gegnum vörn Gróttu í kvöld til að skora eitt tveggja marka sinna í 23:21 sigri. mbl.is/Golli
„Ég er mjög ánægður með baráttuna“, sagði Einar Jónsson þjálfari Fram eftir 23:21 sigur á Gróttu í Safamýrinni þegar 13. umferð N1-deildar karla var leikinn eftir langt frí.
„Við höfum æft vel í fríinu og liðið er vel stemmt svo við vorum klárir í leikinn, ekki síst í varnarleikinn en það duttu út nokkrir stórir póstar rétt fyrir leik svo við fengum nýja menn inn, sem skiluðu sínu vel þó þeir væru ekki nógu "smurðir" í sóknarleiknum auk þess að við erum ekki með hávaxnasta liðið. Hinsvegar varði markmaður Gróttu vel eða þá að við skutum illa á markið en við áttum að skora um þrjátíu mörk.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






