Erlingur: Í gegnum alla flóruna

Kristinn Guðmundsson og Erlingur Richardsson eru þjálfarar HK. stækka

Kristinn Guðmundsson og Erlingur Richardsson eru þjálfarar HK. mbl.is/Árni Sæberg

mbl.is Andri Yrkill Valsson, sport@mbl.is

 „Þetta var frábær baráttusigur hjá strákunum og við erum búnir að snúa blaðinu svolítið við frá því í fyrra,“ sagði Erlingur Birgir Richardsson, annar þjálfara HK, eftir sigur sinna manna á Akureyri í kaflaskiptum leik fyrir norðan í úrvalsdeild karla í handbolta, 27:25.
 
„Ég held við höfum farið í gegnum alla flóruna í þessum leik, lentum undir, komum til baka og erum yfir í hálfleik. Við stilltum svolítið óhefðbundið upp í byrjun sem tók tíma að venjast en ég held við höfum líka grætt á því í lokin þar sem menn voru ekki eins þreyttir.

En miðað við hvernig leikurinn þróaðist í síðari hálfleik þá fannst mér við vera með leikinn í höndum okkar þar sem við keyrum nánast yfir þá. En á þeim tímapunkti fannst mér ýmislegt gerast hjá blástursmönnunum ef ég á að orða það fínt, og þeir misstu algjörlega tökin á leiknum að mínu viti, áherslurnar fóru breytast og þar fram eftir götunum. En frábær baráttusigur staðreynd, liðið er í framför og við verðum bara að halda áfram á þeirri braut,“ sagði Erlingur Birgir Richardsson í leikslok.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is