Finnur fékk bróður sinn til færeysku meistaranna
Færeyska handknattleiksliðið Neistin í Færeyjum skartar nú íslenskum bræðrum í liði sínu. Finnur Hansson hefur leikið með því síðustu árin en í vikunni gekk bróðir hans, Daníel, í raðir félagsins. Hann verður í láni hjá færeyska liðinu frá Íslandsmeisturum FH út tímabilið en Daníel kom til FH frá Stjörnunni síðastliðið sumar.
Finnur er 32 ára gamall og leikur í stöðu skyttu en Daníel er 21 árs gamall hornamaður. Báðir eru þeir synir Hans Guðmundssonar sem gerði garðinn frægan með FH-ingum á árum áður og lék 32 leiki með íslenska A-landsliðinu þar sem hann skoraði 105 mörk.
Finnur er orðinn öllu vanur í Færeyjum en 14 ár eru liðin frá því hann kom fyrst til eyjanna. Hann hefur komið heim til Íslands í stuttan tíma tvívegis á þessum tíma og spilað með FH en hann hefur spilað með fjórum liðum í Færeyjum og með þeim öllum hefur hann orðið meistari, annað hvort landsmeistari eða bikarmeistari. Finnur ákvað að taka upp færeyskt ríkisfang og var þá í kjölfarið valinn í færeyska landsliðið. Hann hefur spilað 14 landsleiki fyrir Færeyjar og lék til að mynda með Færeyingum í undankeppni fyrir HM 2011.
„Ég er bara virkilega ánægður hér í Færeyjum,“ sagði Finnur við Morgunblaðið en hann starfar sem sölumaður samhliða því að spila með liði Neistans.
Finnur er ánægður með að hafa fengið bróður sinn í liðið en þeir eru samfeðra.
„Daníel er örvhentur hornamaður. Við vorum búnir að vera í vandræðum með þessa stöðu og þegar hann kláraði skólann nú um áramótin þá hafði ég samband við FH-ingana og spurði hvort við gætum ekki fengið hann að láni. Þeir voru til í það og nú er hann byrjaður að spila með okkur og ég veit að hann á eftir að standa sig vel,“ sagði Finnur.
Fyrsti leikur Daníels með liði Neistans var undanúrslitaleikur í bikarnum um síðustu helgi þar sem Neistin sló út H71, gamla lið Finns og föður hans. Neistin er því komið í úrslit í bikarkeppninni og er sem stendur í þriðja sæti í deildinni.
Sjá lengra viðtal við Finn í Morgunblaðinu í dag.






