Fram hrökk upp með andfælum
Framarar hrukku upp með andfælum því eftir naum forskot snemma leiks tóku þeir við sér og tókst með herkjum að sigra neðsta lið N1-deildar karla, Gróttu, með 2 mörkum – 23:21.
Eftir ágætan leik sem skilaði naumu forskoti gerðust Safamýrarpiltar heldur værukærir svo gestirnir af Seltjarnarnesi gengu á lagið og tók völdin. Seltirningar mættu eins og nýslegnir túskildingar eftir langa hvíld en tókst ekki að halda stöðugleika en því verður líka að halda til haga að dómar féllu síður með þeim í kvöld.
Magnús Gunnar Erlendsson varði 7 skot hjá Fram og Sebastian Alexanderson, sem kom inná eftir hlé varði 11 en markahæstur var Stefán Baldvin Stefánsson með 5, næstur voru Einar Rafn Eiðsson og Sigurður Eggertsson með fjögur hvor. Hjá Gróttu varði Lárus Helgi Ólafsson 15/1 skot en Þorgrímur Smári Ólafsson var markahæstur með 5 en Kristján Orri Jóhannsson, Þráinn Orri Jónsson og Árni Ben Árnason skoruðu þrjú hver.
Fram er því með 16 stig eftir 13 leiki en Grótta er enn á botni deildarinnar með eitt stig.
Fram tekur á móti Gróttumönnum í Safamýrinni í kvöld þegar N1-deild karla hefst eftir langt hlé en rúmur einn og hálfur mánuður er frá síðasta leik liðanna. Fram er í 4. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 12 umferðir en Seltirningar verma botnsætið með eitt stig.
30. mín. 23:21. Leik lokið.
59. mín. 21:20. Grótta einum færri og Fram í sókn.
55. mín. 19:19. Fram leikmanni færri en það kemur ekki að sök því nú kemur leikreynslan inní. Dómarar eru ekki alveg með á nótunum.
50. mín. 18:17. Nú færist spenna í leikinn, hver mistök dýr. Heimamenn virðast höndla það betur.
47. mín. 15:14. Gróttumenn finna ekki taktinn og þjálfari þeirra tekur leikhlé.
44. mín. 14:13. Loks nær Fram að jafna með marki Jóhanns Karls af línu eftir frábæra sendingu Einars Rafn og síðan komur Stefán Fram yfir. Sebastian sem tók við stöðu Magnúsar í marki Fram hefur varið 6 skot.
38. mín. 11:12. Stefán hjá Fram fékk sína aðra tveggja mínútna brottvísun. Þjálfari Fram prófar ýmsar hrókeringar í leikstjórnandastöðu en það dugar skammt. Gróttumenn er enn að reyna ná sama takti og fyrir hlé.
32. mín. 9:11. Leikurin hafinn á ný og strax skorað.
30. mín. - hálfleikur. 8:10. Eftir góða byrjun missti Fram taktinn og Gróttumenn tóku leikinn í sínar hendur af röggsemi. Murninn væri enn meiri ef dómarar leiksins væru ekki farnir að spila stærri rullu.
28. mín. 8:10. Eitthvað er Fram að taka við sér en það hjálpa slakir dómar þeim í hag.
24. mín. 7:10. Eftir að hafa náð góðum sprett slakaði Fram á klónni en Seltirningar héldu sínu striki og náðu undirtökunum.
22. mín. 7:9. Lárus markvörður gaf tóninn með því að verja þrjú í röð, þar á meðal víti og félagar hans hrukku í gírinn. Fram kastaði hvítu handklæði inná en það var samt ekki uppgjöf heldur festist það í klístrinu og dróst inná völlinn.
18. mín. 7:8. Fram lagði sig ekki bara á verðinum heldur steinsofnaði.
17. mín. 7:6. Fram gekk á lagið og skoraði tvö auðveld mörk en sofnuðu svo á verðinum. Magnús hefur verið 7 skot fyrir Fram og Lárus 3 fyrir Gróttu.
14. mín. 5:4. Stefán Baldvin laumaði einu af línu fyrir Fram, "Robbaði" og eins það er nú kallaði í alþjóðlegum handbolta þegar hann kastar aftur fyrir sig. Tveir Gróttumenn komnir í tveggja mínútna kælingu, eru 4 á móti fullskipuðu liði Fram.
10. mín. 4:2. Magnús hefur varið 3 fyrir Fram og Lárus 1 fyrir Gróttu. Vörn Fram með framliggjandi vörn les sóknir Gróttu vel út og kæfir flesta leikfléttutilburði í fæðingu. Sigurður Eggerts hefur skorað tvívegis þegar sókn Fram er óburðug.
4. mín. 3:2. Fjarvera Halldórs kom ekki að sök því Fram skoraði tvö mörk einum færri.
2. mín. 1:2. Þráinn jafnar með hörkuskoti og Þorgrímur bætir um betur en Halldór Jóhann úr Fram fékk tveggja mínútna brottvísun á milli fyrir að brot þegar hann var of seinn að ná boltanum og felldi Seltirning.
1. mín. 1:0. Sigurður Eggertsson skorar fyrsta markið með skoti af punktalínu.
1. mín. 0:0. Leikurinn hafinn og Fram byrjar með boltann.






