Guðlaugur: Munum læra af þessu
Andri Yrkill Valsson, sport@mbl.is„Það er fátt sem hægt er að segja eftir þennan leik,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, sársvekktur eftir ósigur sinna manna gegn HK, 25:27, í úrvalsdeild karla í handknattleik á Akureyri í kvöld.
Akureyringar byrjuðu mun betur en svo fór að halla verulega undan fæti. Liðið komst þó aftur inn í leikinn þegar skammt var eftir en það var einfaldlega of seint.
„Það er mjög súrt að fá ekkert út úr leiknum eftir að hafa komið til baka undir lokin en það er bara við okkur sjálfa að sakast í þeim efnum, við spiluðum einfaldlega mjög illa. Þrátt fyrir að við höfum byrjað ágætlega fannst mér vera einhver doði yfir okkur frá fyrstu mínútu og það vantaði baráttuna og viljann sem hefur oft einkennt okkur.“
Bæði Guðlaugur og Heimir Örn fyrirliði nýttu fríið sem gert var á deildinni til þess að reyna að ná sér góðum af meiðslum sem hafa plagað þá í nokkurn tíma, en Guðlaugur segist þó enn vera nokkuð frá sínu besta.
„Við erum ekki orðnir nægilega góðir ef miðað er við þennan leik, svo sem eins og allt liðið ef út í það er farið. Það eru ljósir punktar inn á milli en ég á nokkuð í land að verða heill. Nú er bara markmiðið að tryggja okkur í úrslitakeppnina, það kemur ekkert annað til greina. Maður lærir alltaf af því að tapa og við munum læra af þessu. En nú tökum við okkur bara saman eftir þetta og mætum klárir út á Seltjarnarnes í næstu viku og snúum blaðinu við,“ sagði Guðlaugur Arnarsson í leikslok.






