Hetjuleg barátta Aftureldingar dugði ekki

Andri Berg Haraldsson og félagar hans í FH taka á móti Aftureldingu í dag. stækka

Andri Berg Haraldsson og félagar hans í FH taka á móti Aftureldingu í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Afturelding þurfti, eftir hetjulega baráttu framan af leik, að játa sig sigraða þegar liðið heimsótti FH-inga í Kaplakrikann. Leikurinn var virkilega spennandi allt þangað til um 10 mínútur voru eftir en þá tóku heimamenn öll völd á vellinum og unnu að lokum 24:20.

Gæðin voru ekki mikil enda N1-deild karla búin að vera í löngu fríi og það var auðséð.

Markahæstir í liði FH voru Örn Ingi Bjarkason með 6 mörk og Sigurður Ágústsson og Hjalti Pálmason skoruðu báðir 5 mörk. Daníel Freyr Andrésson var frábær í markinu og varði 22 skot. Hjá Aftureldingu var það Jón Andri Helgason sem skoraði mest eða 6 mörk. Davíð Svansson varði 14 skot í markinu.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér að neðan.

Lið FH: Pálmar Pétursson (m), Daníel Freyr Ágústsson (m), Sigurður Ágústsson, Andri Berg Haraldsson, Baldvin Þorsteinsson, Hjalti Pálmason, Ólafur Gústafsson, Magnús Óli Magnússon, Örn Ingi Bjarkason, Þorkell Magnússon, Ari Magnús Þorgeirsson, Ísak Rafnsson, Halldór Guðjónsson, Atli Rúnar Steinþórsson.

Lið Aftureldingar: Davíð Svansson (m), Hafþór Einarsson (m), Hilmar Stefánsson, Helgi Héðinsson, Hrafn Ingvason, Böðvar Páll Ásgeirsson, ARon Gylfason, Einar Héðinsson, Sverrir Hermannsson, Pétur Júníusson, Jóhann Jóhannsson, Jón Andri Helgason, Þorlákur Sigurjónsson, Daníel Jónsson.

55. FH komið með þægilega forystu fyrir síðustu 5 mínúturnar 22:18 og svo virðist sem leikmenn Aftureldingar hafi játað sig sigraða.

50. FH að sigla fram úr Aftureldingu en staðan er 19:16 og Reynir Þór Reynisson, þjálfari gestanna, tekur leikhlé. Það gengur fátt upp í sóknarleiknum og vörnin stendur sig ekki eins vel og hún gerði í fyrri hálfleik. Örn Ingi er með 5 mörk hjá FH og Jóhann Jóhannsson sömuleiðis hjá Aftureldingu.

45. Staðan er 17:16 og Afturelding verður einum manni færri næstu tvær mínúturnar. Tvö mörk í röð frá Erni Inga.

41. Í staðinn fyrir að Afturelding næði þriggja marka mun 12:15 þá hefur FH skorað þrjú mörk í röð og breytt stöðunni í 15:14. Leikmenn Aftureldingar farnir að gera mistök í sóknarleiknum sem er dýrt.

35. Gestirnir náðu mest tveggja marka forskoti, 11:13, og Afturelding var svo að fá möguleika á að auka muninn aftur í tvö mörk en Daníel varði vítakast frá Helga. Staðan því 12:13 en FH-ingar manni færri næstu tvær mínúturnar.

31. Þá er seinni hálfleikur hafinn og eru það heimamenn sem geta jafnað metin í sinni fyrstu sókn.

30. Hálfleikur - Það er mikið jafnfræði með liðunum þrátt fyrir ólíka stöðu í deildinni en gestirnir virðast hafa komið FH á óvart með skynsömum og góðum leik. Staðan er 10:11 Aftureldingu í vil.  Það jákvæða fyrir heimamenn er að það er auðvelt að laga flest af þeim mistökum sem þeir eru búnir að gera í fyrri hálfleiknum. Markahæstur hjá Aftureldingu er Jón Andri Helgason með 4 mörk en hjá FH er það Hjalti Pálmason sem hefur skorað mest eða þrjú mörk. Markverðir liðanna hafa varið vel, Daníel Freyr með 11 skot þar af 1 víti en Davíð í marki Aftureldingar er kominn með 6 skot.

25. Nú eru það FH-ingarnir sem ekki hafa náð að skora í 5 mínútur en gestirnir tvö, staðan því 8:9. Sóknarleikur FH er lélegur og það er mikið um mistök sem ekki eiga að sjást eins og að menn grípa ekki boltann og skjóta víðsfjarri marki. Þeir hafa nóg að laga í hálfleiknum og þjálfararnir væntanlega byrjaðir að móta ræðuna. Það má hinsvegar ekki taka það af gestunum að þeir hafa spilað skynsamlega.

20. Afturelding er aðeins að gefa eftir en þeir hafa nú ekki skorað í rúmmar fimm mínútur og að sama skapi hefur FH náð frumkvæðinu 8:7.

15. Bæði lið bæta við tveimur mörkum á hverjum 5 mínútum og því er lítið að frétta héðan úr Kaplakrika. Markahæstur hjá FH er Sigurður með 3 mörk en Helgi, Sverrir og Jóhann eru allir með tvö mörk hjá Aftureldingu.

10. Enn eru gestirnir með frumkvæðið 4:5 en heimamenn virka ryðgaðir á þessum upphafsmínútum.

5. Afturelding byrjar vel en staðan er 2:3. Þeir ná að klára flestar sóknir sínar með skoti og varna því að FH nái hraðaupphlaupum.

2. Helgi Héðinsson skoraði fyrsta mark leiksins og eina markið hingað til en staðan er 0:1.

1. Þá er leikurinn hafinn, og eru það gestirnir sem byrja í sókn.

0. Nú þegar um 6 mínútur eru í að leikurinn hefjist eru fáir áhorfendur mættir. Hvort það er slagveðrið úti eða eitthvað allt annað sem kemur í veg fyrir betri mætingu er ómögulegt að segja til um. Vonandi á stuðningsmönnum félaganna eftir að fjölga.

0. Jón Karl Björnsson og Þorleifur Björnsson koma til með að sjá um dómgæsluna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is